amm ég er að verða 27 á morgun, þetta er svona í fyrsta skiptið sem mér er ekki alveg sama um hvað ég er að verða gömul....
það er kannski vegna þess að ég er á litla íslandi sem er að fara til fjandans... ja svona allt að því...
ég er í óvissu með vinnu
er reyndar á brautargengi námskeiði, sem mér þykir mjög skemmtilegt

en já ég er ekki alveg að sjá mig hoppa úr kæti frammúr í fyrramálið
ætla samt að fara í bæinn á eftir, dóttir mín ástkær er farin að standa og labba á 2 jafnfljótum og undanbrögð skókaupa ófær. Ég ætla líka í tilefni afmælis míns að kaupa mér skó... amm með hæl... er orðin leið á að liggja í rigningunni

jæja ætli maður reyni ekki að njóta síðasta dags 26 og spurning hvort maður fari útí búð og kaupi í eina köku fyrir morgundaginn... ekki bakar markús fyrir mig, það á víst betur við hann að smíða, smyrja, berja og líma - við erum bæði orðin eitthvað svo skítug, hann í vinnudrullu og ég þá aðalega í matarleyfum og slefhori... ekki það að við séum þekkt fyrir eitthvað glans og glamúr... en spurning um að láta þennan skít ekki verða að hversdaglegu brauði. maður ætti kannski að taka upp fancy friday, hver veit?!
moody monday, choose on tuesday, wet wednesday, thirsty thursday, fancy friday, mad saturday og sunny sunday
þessa daga hef ég lifað

Mondays: 1409
Tuesdays: 1409
Wednesdays: 1408
Thursdays: 1409
Fridays: 1409
Saturdays: 1409
Sundays: 1409
Working days: 7044
Days in total: 9862